Yngstu atvinnuleikarar á Íslandi!
17.04.2007 16:36:54 / Leikari

Hæhæ:D

Hæ! Gleðilega páska öll sömu:DÞað er eiginlega einginn sem bloggar á þessari síðu:whut:Hitti bara Hreindísi um daginn og mundi þá eftir þessari síðu og ákvað bara að skrifa eikkva;) Í byrjun þá blogguðu allavegana fleiri en núna:!:  En getum við ekki farið að halda annann svona hitting, langar svo að hitta alla og svo langt síðan:cry:  

Kv. Karitas:*


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.01.2007 22:47:37 / Bryndís

EMMA ?

já fyrst , til hamingju með daginn .

en hérna emma söngst þú ekki viðlagið eðaþúst þanna í lagginu   

frægur - undir heimar

e-h svoa , vá þið eruð sætir ' ?

en llove

bryndís


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.11.2006 13:01:17 / Hreindís

Emma sætust er 16 ára í dag!

Elsku Emma okkar á afmæli í dag! Loksins orðin 16 ára! Ég er búin að gera mikið grín að henni núna undanfarið að vera bara 15! Vona að mér verði fyrirgefið! Nú er bara ár í bílprófið...taktu eftir að ég sagði BARA ár! Jæja en Emma mín, til hamingju með daginn og mundu að við elskum þig alveg geðveikt! Hérna er svo mynd af skvísunni!

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.10.2006 22:02:06 / Hreindís

Smá update...

Fyrr á þessu ári skrifaði ég stutt blogg um hvað leikararnir sem voru með okkur í Annie voru að bralla og núna spurðist ég fyrir og komst að því að það eru einhverjir sem voru til í að fá ,,update" á því sem þau eru að gera. Hérna kemur það sem sagt fyrir þá sem hafa áhuga.

Íris María er að dansa í Footloose, Hafinu Bláa og svo kenna dans í JSB. Bjartmar er að dansa í Footloose, læra söng og talsetja (held ég). Gummi er að leika í Footloose og svo heyrði ég því fleygt að hann og Þórdís Elva væru að skrifa eitthvað efni fyrir sjónvarpsstöðina Sirkus. Veit ekki hvað þau eru að bralla meira en það er eflaust eitthvað sniðugt. Nú, Bryndísi Petru sá ég auglýsta að leika í verki sem heitir Ég á mig sjálf og ég verð að segja að það verk hljómaði mjög spennandi, Bjarni er ábyggilega eitthvað að galdra og svo er hann að vinna með Denna í áhugaleikfélaginu hérna í Mosó þar sem Denni er að leikstýra. Það verk heitir Varaðu þig á vatninu og er þrælskemmtilegur farsi. Þórunn Arna er í leiklistardeild LHÍ og líkar vel skilst mér á henni. Hún er þar með í framkomubanni svo að við fáum ekkert að sjá hana á fjölunum strax (því miður). Hún er reyndar einhverskonar móttökumanneskja/sætavísa í Hvít kanína sem nemendaleikhús Listaháskólans er að setja upp. Eitthvað sem fyrsta árs nemarnir það eru að gera. Ég er nú bara ekki viss hvar má sjá hana Brynju Valdísi eða hann Höska en læt ykkur vita um leið og ég frétti eitthvað. Elli er að leika í Hafinu Bláa og held ég, samt ekki viss, að læra eitthvað...Ingibjörg Stefáns sem stoppaði stutt með okkur opnaði sitt eigin Jóga stúdíó á árinu og gengur eflaust vel. Gísli Pétur er að leika með LA (Leifélag Akureyrar) núna í vetur í verkunum Herra Kolbert og Svartur köttur svo að ef einhver verður á Akureyri í vetur þá er um að gera að nýta ferðina og skella sér í leikhús.

 

Mig dauðlangar krakkar að gera annað svona um það sem við öll erum að gera, endilega sendið mér línu og segið mér hvað þið eruð að bralla svo ég geti tekið það saman í einn texta og sagt frá því hér... sendið á hreindisylva@gmail.com

 

Ykkar, Hreindís


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.10.2006 02:33:40 / Hreindís

Hahaha...hún Álfsól okkar!

Haha, nördinn ég prófaði að googla sjálfa mig og var þá vísað inn á bloggsíðu sem hafði þetta blogg að geyma og ég ákvað að deila því með ykkur, langt síðan ég hef hlegið svona mikið!:

31.8.2006

Hreindís eða Hreindýr?

Hafiði heyrt þetta um þetta nafn?

Álfsól og Gunni misskildu hvort annað svo svakalega fyrr í kvöld: Gunni spurði Álfsól hvernig gengi með Emil (Álfsól er s.s. að fara leika í Emil í Kattholti) og hún svarar: Ég veit það ekki...en á ég að segja þér, ég hitti Hreindísi um daginn sem er líka að fara leikaGunna heyrðist hún segja hreindýr og spyr hvort það sé hreindýr í leikritinu?! Álfsól svarar játandi því henni heyrist hann segja Hreindís. Gunni er eitthvað að furða sig á af hverju það skuli vera hreindýr í sögunni, hann mundi ekki alveg eftir því. Ég greip þá frammí og bendi honum á að stelpan heiti þetta. Gunni lítur á Álfsól og segir: Heitir stelpan í alvöru Hreindýr? svarar Álfsól. Gunni var svo gapandi hissa á þessu nafnavali og spyr hana aftur, og Álfsól svarar aftur játandi - en í svona *svakalegaertutregur* tón. Eina sem Gunni gat sagt var Guð minn góður!!

Álfsól skildi ekki hvað var svona ótrúlegt við að Hreindís skyldi vera í leikritinu og Gunni skildi ekkert í foreldrum greyið stelpunnar. Þetta er kannski svona had to be there brandari, en ég gat allavega ekki leiðrétt þau nærri því strax því ég hló svo mikið :)

En fyrsti skóladagur hjá okkur skötuhjúum á morgun, og ég hlakka eiginlega bara til, ótrúlegt en satt! :)

Skrifað 31.8.2006 kl. 22:15 af *Jóhanna*

Bein slóð á færslu

Jesús Álfsól, þú ert yndisleg! Hlakka mikið til að vinna með þér aftur!

Hreindís


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.09.2006 23:22:35 / Hreindís

Elsku, elsku Ingan okkar!

Elsku, elsku, hjartans Inga Birna okkar.

Ég ákvað að skrifa hérna eina færslu sem ég hef ákveðið að taka mér það bessaleyfi að skrifa frá öllum Annie-krökkunum, við erum svo mörg að ef að allir myndu blogga þá tæki það þig alla ævina að lesa allt. Enda veit ég að allir eru sammála mér þegar ég segi að ég get ekki einu sinni reynt að ímynda mér hversu erfiða tíma þú ert að ganga í gegnum og hversu mikinn missi þú hefur upplifað núna. Þegar svona mikilvæg manneskja hverfur frá manni er alltaf erfitt að læra að fúnkera aftur. Ég vona bara að Ingan sem ég þekki, sem er alltaf svo kát og hress og dugleg og lætur ekkert slá sig niður, haldi áfram að brosa og lifa lífinu vegna þess að það er áreiðanlega það sem mamma þín hefði viljað. En mundu bara að hún fer aldrei frá þér alveg, hún lifir alltaf innra með þér. Mundu eftir góðu stundunum sem þið áttuð saman og hvað þú ert heppin að hafa átt þær með henni.

Með þessari færslu vildi ég líka minna þig á að víðsvegar um höfuðborgarsvæðið eru 30 krakkar sem þykir ofsalega vænt um þig og hugsa hlýtt til þín á þessum erfiðu tímum. Við erum öll bara símtal í burtu! Mundu það!

Elsku Inga, ég vona að þessi færsla minni þig á vini þína úr leikhúsinu, sem þekkja þig kannski ekki best í heiminum en, við óskum samt allrar þeirra gleði sem til er í heimi fyrir þig.

Á svona erfiðum tímum er einn texti sem við ættum öll að þekkja viðeigandi:

Til sólar mun sjást
á morgun.
Ég skal veðja við þig
að - á morgun
sólin skín.

Ég þarf ekki´ að þjást 
á morgun.
Sólin eyðir öllum
mínum sogum,
elskan mín.

Þegar allt er í hnút 
og sút - og seyru.
Ber ég höfuðið hátt
og sátt,
Ég syng - já ...

Til sólar mun sjást
á morgun
Ef þú þraukar þangað 
til á morgun,
alveg einn.

Á morgun, á morgun,
mun renna´ upp
nýr dagur.
Sá dagur
er degi´ of seinn.

Þó að allt sé í hnút
og sút og seyru
blasir við okkur vegur, 
breiður beinn.

Til sólar mun sjást
á morgun
Ef þú þraukar þangað 
til á morgun,
alveg einn.

Á morgun, á morgun,
mun renna´ upp
nýr dagur.
Sá dagur
er degi´ of seinn.

Mundu það sem Annie sagði... :D

Við elskum þig

Fyrir hönd Annie-krakkanna

Hreindís Ylva


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.09.2006 14:13:15 / Bryndís

Inga Birna min :*

hæ krakkar min :*

Gvuðminn góður inga birna min :O , þetta eru hræðilegar fréttir !.:cry:

eg sammhryggist þér ekkert smá mikið.:( ég get alls ekki lýst því hvað ég sammhryggist þér mikið, :cry: eg var næstum því farina ð gráta þegar ég heyrði þetta ;O maður getur ábyggilega ekki misst meira en þetta :O  , þú áttt þetta ekkki skilið & ekki fjöldskyldan þín heldur, þú ert svo ógeðslega yndisleg & æðisleg & frábær stelpa. E´n ég veit að þú ert svo strerk að þetta eigi eftir að lagast en ég veit alveg að þetta á aædrei eftir að lagast aalveg, en inga birna min haltu áframa að vera svona glöð & yndisleg stelpa eins & þúert ef  þér vantar e-h e-h að tala við eða e-h hringdu þá bar í mig 8665943

samhrygggist þérdjúpt

Bryndís


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.08.2006 23:05:06 / Hreindís

Myndir

Krakkar mínir, myndirnar frá hittingnum okkar eru komnar hérna í myndadálkinn, neðarlega, vinstra megin á síðunni.

Njótið vel og takk fyrir frábæra kvöldstund þið sem komuð, við verðum að gera þetta aftur!

Kv. Hreindís


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.08.2006 19:11:55 / Hreindís

Mikilvægt

Hæhæ

Við verðum nú að reyna að halda þessari síðu á lífi.

En það var samt ekki erindið...því miður hef ég ekki enn fengið staðfestingu frá öllum varðandi hittinginn í næstu viku. Það þýðir að ég þarf að fara að hringja, sem er ekki skemmtilegt. En...ÉG VIL MINNA ALLA Á AÐ ÞAÐ EIGA ALLIR AÐ KOMA MEÐ EITTHVAÐ SMÁ NAMMI EÐA EITTHVAÐ ANNAÐ TIL AÐ BORÐA. Við Thelma ákváðum að kaupa gosið en hinu björgum við öll í sameiningu. Endilega látið mig vita að þið hafið lesið þetta og munið koma með eitthvað með ykkur. Skrifið mér email eða skrifið í skoðanir hér fyrir neðan.

Hlakka til að sjá ykkur

Hreindís


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.07.2006 00:23:06 / Hreindís

ATH!

Jæja krakkar!

Nú er áríðandi að allir kíki á emailið sitt og staðfesti póst sem heitir: Allt komið á hreint með Annie-krakka partýið. Við erum sem sagt komnar með dagsetningu og tímasetningu. Ef þið hafið ekki fengið email endilega hringið í mig í síma 8937861.

Kv. Hreindís


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.07.2006 01:14:40 / Bryndís

Hæ Faddera hæ fadderí daddirallalala;Þ

Lesa bloggið fyrir neðan, mikilvægt: )

Hæj: )

oky , hæj já í dag var ég að passa  :/ fór í sprautu & svo fór ég að hitta auði,

já þetta var dagurinn: ); en ég ætlaði að segja ykkur þá fáranlegu fréttað ég kemst ekki í partíyð, ég var bara , oh mig langaði að öskra þegar ég sá dagsettnignuna ég bara NEI!, fjandinn, þetta er avleg típískt fyrir mig, en það er samatekkert of svekkjandi það sem ég er að gera :P,ég verð út í flórída, fer 4, águst & kem 20 æagust. á fokkin afmælisdaginn minn: /, smart ,alveg, en já ekki þennar miðviku dag heldur næsta fer ég til benidorm í brúðkaup. Það verður gaman bar aheld, prófa e-h nýtt, en já ég vona það svo innilega að það verði ótrúlega skemmtilegt hjá ykkur & eg hugsa til ykkar 6 þið hugsið til min:P

 Elska ykkkur

Ástakv.

Bryndís


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.07.2006 00:34:06 / Hreindís

Partý, partý!

Hæhæ!

Við Thelma ákváðum að drífa í þessu partýstandi sem allir eru að tala um að þeim langi að gera og erum að plana Annie-krakka partý. Ég sendi í kvöld email á alla, sum komu til baka og mun ég hringja í þá einstaklinga á morgun.

Endilega svarið sem fyrst, annars þarf ég að fara að vesenast í að hringja í allt liðið og það er bara ekkert gaman!

Kv. Hreindís

P.S. Áfram Magni!


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.07.2006 10:36:43 / Bryndís

Hæj: )

Yellow,

heyrðu já ég ætla a' deila þessu hérna með ykkur í nótt dreymdi mig að við værum að byrja aftur í annie allur ferilinn aftur læra þetta allt & við jkunnum þetta ekki sko, eða þúst við vorum bara læra allt viðar var að skipta í hlutverk & e-h , rosalega skemmtilegt, +eg hafði getað fariað að grenja þegar ég vaknaði : /, ig langar svo aftur, svo sakna ég líka svo ykkar,

en ég fór á footlosa á fimt & það var geðveikt, en

verð að kveðja

Bryndís


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.06.2006 20:47:11 / Hreindís

Allir saman nú...FOOTLOOSE!

Hæ öll

Ég er komin heim frá Ítalíu. Það var mjög gaman en það er samt gott að vera komin heim. Fór á frumsýninguna á Footloose í gærkvöldi og hitti þar Írisi sætu Annie-stelpu. Svo voru Gummi, Íris María og Bjartmar að leika og dansa þarna. Þau stóðu sig öll rosalega vel. Ég þekkti líka fleiri þarna, held að ég þekki 9 af 22 leikurum. Mér finnst það bara nokkuð góð frammistaða :D En ég held ég mæli bara eindregið með þessum söngleik. Mikill kraftur og gleði í gangi. Dansarnir eru algjörlega geðveikir og leikarar og dansarar fara vel með þá. Greinilega mikið lagt á sig þarna til að gera þetta sem flottast, það er alltaf gaman að sjá svona samstíga hóp gera vel. Þau fengu líka allt það klapp sem þau áttu skilið. Flott sýning og ég ætla pottþétt aftur seinna.

En að öðrum merkilegum fréttum, þið vitið kannski ekki öll að hún Emma okkar er bæði komin inn í Listdansskólann og MH. Ég var nú glöð fyrir hennar hönd að komast inn í Listdansskólann en núna er ég bara himinlifandi að fá hana til mín í MH. Til hamingju Emma mín! Hlakka ekkert smá til að fá þig. Pælum í því, við allar þrjár komnar í MH - Steinunn, ég og þú! Þríeykið! Hérna er alveg sérstaklega slæm mynd af okkur í tilefni af því!

En ég kveð! Og núna mega Emma og Thelma fara að standa við stóru orðin, þær voru báðar búnar að bjóðast til að halda Annie-krakka hitting!

Ciao (eins og Ítalir segja!)

Hreindís


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.06.2006 13:30:02 / Hreindís

Italy...

Hae hae Eins og eg lofadi ad ef eg kaemist i tolvu ta myndi eg blogga og eg er her med ad uppfylla tad loford. Eg er sem sagt a Italiu og er um tessar mundir i vatnsleikjagardi sem heitir Acquafan og hvad er eg ad gera i stadinn fyrir ad missa mig i rennibrautum og brenna eins og skrattinn sjalfur, eg er ad blogga fyrir ykkur. Eg sa bara HotSpot og hljop inn med Kristjonu vinkonu minni. En fra midvikudeginum 14. juni til 21. juni var eg i bae sem heitir Monzuno og er uppi i fjollunum i Italiu. Tar heimsottum vid adra ludrasveit og vorum inni a heimilum hja teim, vid vorum reyndar einar i ibud en vorum samt gestir fjolskyldna. Tad var svakalega odruvisi en samt rosalega gaman og vid hlokkum til ad fa itolsku vini okkar i heimsokn i juli. Svo tann 21. juni ta keyrdum vid til Rimini og erum a islendingahoteli tar. Tad er voda fint. Vid erum svo morg ad vid fyllum naestum hotelid. Eg er med vinkonum minum i ibud. Vid erum sex i fjogurra manna ibud og eins og gefur ad skilja er MJOG throngt hja okkur. Svo er tad alltaf tannig ad tegar sex stelpur eru saman i herbergi of lengi ta verdur alltaf drama. Vid hofum ekki farid varhluta af tvi stollurnar. En tad lagast. En til hamingju krakkar og allir sem voru i Annie med ad lenda i fimm efstu saetunum yfir vinsaelustu syningu arsins. Mer fannst vid nu alveg potttett eiga ad fa tilnefningu sem besta barnasyningin lika en tar sem ad tad voru bara 9 syningar sem komu til greina ta voru bara trjar tilnefndar en ef ad tad hefdu verid 10 syningar sem kaemu til greina ta hefdu fimm fengid tilnefningu - FULT! En Hafid blaa vann ahorfendaverdlaunin og eg var ad vinna a ljosunum i teirri syningu svo eg er satt. Og Gummi fekk verdlaun...gaman, gaman...og Thordis tilnefningu...flott flott... En Emma, hvad varstu ad segja gaman ad hitta ykkur a 17. juni? Hittust tid eitthvad eda bara svona fyrir tilviljun i baenum. A 17. juni var eg i sundlaug i fokking alltof miklum hita og allir sem aetludu i laugina urdu ad vera med sundhettu...bara fyndid...Myndir tegar eg kem heim. Vid sungum 17. juni lagid mjog oft! Svo vorum vid i afar vandraedaegri maltid med fjolskyldunum um kvoldid, tar sem ad tau skilja afar litla ensku var mjog erfitt og vandraedalegt ad tala saman, vid vorum reyndaralltaf frekar heppnar med folk, sumir turftu ad tala bara taknmal...vid gatum alltaf stamad eitthvad i gegnum tetta. Hlogum lika mikid og aumingjans folkid skildi ekki neitt... En tad kemur almennileg ferdasaga tegar eg kem heim... Elsku krakkar eg sakna ykkur GEDVEIKT og hlakka til ad hitta ykkur tear eg kem heim! Vid VERDUM ad hittast, Emma og Thelma vorud tid ekki badar bunar ad bjodast til ad halda hitting? Og EMMA YNDISFRIDA!!!!! Er eg ad skilja tig rett, ertu komin i MH? Til hamingju, tad verdur bara geggjad ad hafa tig tarna yndisbesta....Heyri i ter tegar eg kem heim og tegar tidverdid komnar heim... Elsk'ykkur oll! Ykkar og engra annarra Hreindis Ylva

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7